„Mér fannst við eiga að hafa átt að klára leikinn mun fyrr miðað við færin sem við fengum. Við spiluðum mjög vel þangað til að það kom að því að klára færin,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-3 sigur Víkings á Stjörnunni.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
„Stjörnumenn voru góðir og erfiðir, sérstaklega þegar staðan var 1-0, 2-0 og 2-1. Þá eru þeir alltaf inni í leiknum. Þeir eru mjög góðir þó að staðan hjá þeim í deildinni sé eins og hún er í dag. Ég er mjög sáttur en við verðum að fínpússa hvernig við klárum færin.“
Gylfi fór á punktinn en Helgi Guðjónsson hefur verið vítaskytta liðsins. Gylfi var spurður hvort hann sé nú orðinn vítaskytta Víkinga.
„Nei nei, ég einhvern veginn fór að ná í boltann. Síðan kíkti ég á Helga og Helgi kíkti á mig, hann kinkaði kolli þannig ég tók þetta bara.“
Gylfi hefur skorað fimm mörk í sjö leikjum í deildinni hingað til. Á síðasta tímabili skoraði hann alls sex mörk í 24 deildarleikjum.
„Ég held að þetta sé stundum svona. Þú ferð í gegnum fimm leiki þar sem þú skorar fjögur, fimm mörk. Síðan koma leikir þar sem að leikirnir þróast kannski öðruvísi og maður er aftar á vellinum passívari. Þetta hefur verið að detta hingað til, vonandi heldur það áfram,“ sagði Gylfi að lokum.






















