Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   þri 26. maí 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Liverpool leitar að arftaka Salah - Arsenal með Alvarez í sigtinu
Powerade
Mynd: EPA
Tottenham er með augastað á Savinho, Liverpool leitar að arftaka Salah og Arsenal er með Julian Alvarez í sigtinu. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.

Tottenham vill sækja Savinho (22) og undirbýr 60 milljóna punda tilboð í brasilíska vængmanninn hjá Manchester City. (Mail)

Liverpool setur kaup á arftaka Mohamed Salah í forgang. Yan Diomande (19) vængmaður RB Leipzig er þar efstur á lista. Anthony Gordon (25) og Bradley Barcola (23) koma einnig til greina. (Telegraph)

Bayern München hefur jafnframt áhuga á Anthony Gordon (25) og gæti boðið markvörðinn Alexander Nubel (29) í skiptum sem hluta af tilboðinu. (Bild)

Barcelona ætlar í nýjar viðræður við Manchester United fyrir HM um varanleg kaup á Marcus Rashford (28), en félagið er sagt hafa náð samkomulagi við leikmanninn um kaup og kjör. (Talksport)

Enzo Fernandez (25), miðjumaður Chelsea, er sagður helsta skotmark Manchester City fyrir sumarið. (Fichajes)

Roma hefur áhuga á Mason Greenwood (24), Joshua Zirkzee (25) og Crysencio Summerville (24) fyrir komandi átök í Meistaradeildinni á næsta tímabili. (La Gazzetta dello Sport)

Julian Alvarez (26) vill fara frá Atlético Madrid. Arsenal er með Argentínumanninn í sigtinu og ætlar að gera atlögu að framherjanum. (Teamtalk)

Aston Villa horfir til Harvey Barnes (28), kantmann Newcastle, fyrir Meistaradeildina á næsta tímabili. (Mail)

Juventus er nálægt því að semja við Alisson en hann á rúmt ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool. (Goal Italia)

Þá er Liverpool komið í kapphlaupið um þýska ungstirnið, Kennet Eichhorn (16), miðjumann Hertha Berlin. (Sky Germany)

Bernardo Silva (31) hefur átt í viðræðum við Atlético Madrid, sem reynir að skáka Juventus í baráttunni um portúgalska miðjumanninn. (Teamtalk)

Scott Parker og Gary O'Neil koma til greina hjá West Ham ef félagið lætur Nuno Espirito Santo fara í sumar. (Guardian)

AC Milan hefur haft samband við fulltrúa Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, eftir að félagið rak Massimiliano Allegri. (Sky Sports)
Slapp
banner