Fotbolti.net
16.06.26 - 18:23
Kári Snorrason

Byrjunarlið Víkings og KR: Vatnhamar byrjar - Eiður Gauti á bekknum

Eiður Gauti tekur sér sæti á bekknum.

Eiður Gauti tekur sér sæti á bekknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Víkings taka á móti KR í stórleik kvöldsins í Bestu deildinni. Um er að ræða tvö efstu lið deildarinnar en Víkingur er með þriggja stiga forystu á Vesturbæinga.

Jóhann Ingi Jónsson dómari flautar leikinn af stað 19:15 og búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 KR
Sölvi Geir Ottesen gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-2 bikarsigri gegn ÍA uppi á Skaga síðastliðinn föstudag.

Inn í liðið koma landsliðsmennirnir tveir, Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar, ásamt Erlingi Agnarssyni.

Sveinn Gísli Þorkelsson, Ármann Ingi Finnbogason og Tarik Ibrahimagic taka sér sæti á bekknum. Jóhannes Kristinn Bjarnason er utan hóps hjá Víkingum.

Óskar Hrafn Þorvaldsson gerir tvær breytingar frá 5-3 sigri KR gegn KA í Vesturbænum í síðustu umferð.

Stefán Árni Geirsson og Orri Hrafn Kjartansson koma báðir inn í liðið á kostnað Eiðs Gauta Sæbjörnssonar og Sigurðar Breka Kárasonar. Stefán fer væntanlega fremstu stöðuna líkt og gegn Val fyrr í sumar þar sem hann skoraði tvö mörk.

KR endurheimtir Alexander Rafn, Arnór Ingva og Ástbjörn Þórðarson úr meiðslum og eru þeir allir í hóp. Arnór er sá eini sem byrjar en hann fór meiddur af velli gegn KA.

Fljótt á litið er leikmannaval KR örlítið varnarsinnaðra en hefur tíðkast á tímabilinu.

Byrjunarlið Víkingur R.

Aron Snær Friðriksson, Peter Oliver Ekroth (fyrirliði), Gunnar Vatnhamar, Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson, Óskar Borgþórsson, Karl Friðleifur Gunnarsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Elías Már Ómarsson

Byrjunarlið KR

Halldór Snær Georgsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Stefán Árni Geirsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Orri Hrafn Kjartansson

Óvissa var um hvort Gunnar yrði leikfær eftir að hafa meiðst með færeyska landsliðinu.

Óvissa var um hvort Gunnar yrði leikfær eftir að hafa meiðst með færeyska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram13+727
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV13-415
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.