Man Utd ekki tilbúið að borga verðmiðann

Mateus Fernandes.

Mynd: EPA

Mateus Fernandes.

Mynd: EPA
Manchester United hefur mikinn áhuga á portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes en félagið er ekki tilbúið að greiða það verð sem West Ham hefur sett á leikmanninn.
West Ham er með um 80 milljóna punda verðmiða á hinum 21 árs gamla Fernandes, en Sky Sports greinir frá því að Man Utd sé að undirbúa sitt fyrsta tilboð.

Fernandes er sagður vera í forgangi hjá United þar sem félagið hyggst styrkja miðsvæðið fyrir komandi tímabil.
West Ham er hins vegar ekki undir neinni pressu að selja leikmanninn, sem kom til félagsins frá Southampton síðasta sumar fyrir 38 milljónir punda.
Talið er ólíklegt að Manchester United samþykki að greiða uppsett verð og því þurfa félögin að finna sameiginlegan flöt ef af félagaskiptunum á að verða.
Samkeppnin um undirskrift Fernandes gæti einnig orðið hörð, en bæði Evrópumeistarar Paris Saint-Germain og Real Madrid eru sögð fylgjast grannt með stöðu hans.