Óþægilegt Facetime-símtal

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United.

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, segir að Thomas Tuchel hafi tilkynnt sér í FaceTime-símtali að hann yrði ekki í enska landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið sem núna fer fram.
Fjarvera Maguire úr 26 manna hópi Tuchel vakti mikla athygli þegar hópurinn var tilkynntur, en miðvörðurinn sagðist þá hafa verið „miður sín og sleginn“ yfir ákvörðuninni.

Í hlaðvarpsþættinum The Rest is Football World Cup sagði Maguire að hann teldi sig enn hafa átt skilið sæti í hópnum.
„Hann hringdi í alla á FaceTime. Þetta var frekar óþægilegt símtal,“ sagði Maguire um samskipti sín við Tuchel.
„Ég fékk skilaboð þar sem hann bað um að ræða við mig um klukkan fjögur. Þetta er sérstök leið til að gera þetta og hlýtur að vera erfitt fyrir hann þar sem hann sér viðbrögð allra."
Maguire segist hafa tjáð Tuchel strax að hann væri mjög vonsvikinn.
„Ég taldi að ég hefði gert nóg til að komast í hópinn og að ég gæti hjálpað liðinu, bæði innan vallar og utan."
Samkvæmt Maguire sagði Tuchel að hann gæti ekki gefið honum neina sérstaka skýringu, en hefði ákveðið að treysta þeim fjórum miðvörðum sem hefðu skilað liðinu á mótið.
Þrátt fyrir vonbrigðin segist Maguire þó ekki ætla að leggja landsliðsskóna á hilluna.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!