Arsenal vill fá son fyrrum leikmanns félagsins

Mynd: Tottenham

Mynd: Tottenham
Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á að fá til sín varnarmanninn unga Elijah Upson, son fyrrverandi leikmanns félagsins Matthew Upson.
Elijah Upson, sem er 18 ára gamall, hefur verið í akademíu Tottenham frá sjö ára aldri en tilkynnti nýverið að hann myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í lok mánaðarins.

Samkvæmt The Athletic fylgist Arsenal grannt með stöðu leikmannsins og gæti reynt að fá hann til félagsins á frjálsri sölu.
Ef af félagaskiptunum verður myndi Elijah feta í fótspor föður síns, Matthew Upson, sem lék með Arsenal á árunum 1997 til 2003.
Matthew Upson spilaði alls 57 leiki fyrir Arsenal áður en hann spilaði með Birmingham City og West Ham United. Hann lék einnig 21 landsleik fyrir England og lagði skóna á hilluna árið 2016.
Elijah leikur sem miðvörður líkt og faðir sinn og yrði fyrst og fremst fjárfesting til framtíðar fyrir Lundúnafélagið.