KR vann 3-1 sigur gegn Val í Bestu deildinni í gær og er þetta þriðji sigur KR-inga á nágrönnum sínum á þessu tímabili. Væri Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, til í að spila við Valsmenn í hverri viku?
Lestu um leikinn: KR 3 - 1 Valur
„Nei, nei. Mér finnst fullmikið að vera búinn að spila við þá þrisvar á þessum tíma. Við spiluðum við Stjörnuna tvisvar á fimm dögum. Ég ber mikla virðingu fyrir körfubolta- og handboltaliðum sem spila fimm leiki á tíu dögum við sama liðið í úrslitakeppni. Okkur hefur gengið vel með Valsarana á þessu tímabili en ég nenni ekki að spila á móti þeim í hverri viku,” sagði Óskar Hrafn.
„Það mikilvægasta í þessu er að skila góðri frammistöðu sem gaf þrjú stig. Það stendur upp úr.”
KR byrjaði leikinn frábærlega. „Mér fannst fyrri hálfleikurinn feykilega öflugur. Mér fannst eins og við hefðum getað drepið leikinn í fyrri hálfleik, klárað hann.”
Óskar var spurður út í víti sem Valsmenn fengu í síðari hálfleik.
„Ég skoða aldrei umdeild atvik (í leik), ég skoða það kannski á morgun. Ég græði ekkert á því að vera að skoða þetta á bekknum og búa til neikvæða orku. Ef ég ætla að fara að henda mér ofan í hvert einasta smáatriði sem kemur upp þá verður orkan ekki jákvæð frá mér. Ég treysti Þórði (Þorsteini Þórðarsyni) til að dæma rétt. Það þarf yfirleitt mikið til að hann dæmi vítaspyrnu. Ég treysti honum.”






















