Maður dagsins á HM - Argentínski spaðinn sem stýrir gullkynslóðinni

Hefur stýrt Ekvador í tvö ár.

Mynd: EPA

Unnu Þjóðverja 2-1 í gær.

Mynd: EPA

Hárið glæsilega.

Mynd: EPA

Mæta líklegast Englandi í 32-liða úrslitum.

Mynd: EPA

Hefur stýrt Ekvador í tvö ár.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Argentínski þjálfarinn Sebastian Beccacece, þjálfari Ekvadors, er maður dagsins en Ekvador tryggði sig áfram í útsláttakeppni HM í fyrsta sinn í 20 ár í gær með óvæntum sigri á Þýskalandi. Glæsilegt hár og lífleg nærvera í boðvanginum einkenna þennan 46 ára þjálfara.

Myndi stíga til hliðar kæmist Ekvador ekki áfram
Útlitið var þó svart hjá Ekvador fyrir lokaumferðina. Liðið hafði tapað gegn Fílabeinsströndinni og gert jafntefli við Kúrakaó. Þetta átti að vera heimsmeistaramótið þar sem gullkynslóð Ekvador stimplaði sig inn, með leikmenn á borð við Moises Caicedo, Piero Hincapie og William Pacho.
Í fyrradag hafði sá argentíski greint frá því að hann myndi stíga til hliðar sem landsliðsþjálfari Ekvadors ef liðinu mistækist að tryggja sig í 32-liða úrslitin.
Fyrir leikinn var ljóst að einungis sigur myndi tryggja liðinu áfram í 32-liða úrslitin. Eftir að hafa lent undir eftir aðeins tvær mínútur sneru Ekvadorar taflinu við og uppskáru 2-1 sigur.
Eftir að Ekvador komst yfir leyndi hinn hárprúði Beccacece ekki tilfinningum sínum og klifraði hann upp í stúku þar sem hann fagnaði innilega með fjölskyldu sinni.
Var á bekknum þegar Hannes varði frá Messi
Leikmannaferill Beccacece er ekki merkilegur en hann hætti ungur að aldri og fetaði menntaveginn. Þjálfun var eitthvað sem heillaði þó alltaf og var hann snemma byrjaður að þjálfa börn og unglinga í heimalandinu.
Hans helsti lærifaðir er Jorge Sampaoli en rétt rúmlega tvítugur var hann byrjaður að leikgreina fyrir Sampaoli og fylgdi hann honum næstu þrettán árin. Þá var Beccacece aðstoðarmaður Sampaoli á HM 2018 þegar Ísland mætti Argentínu.
Sem aðalþjálfari hefur Beccacece stýrt stórum liðum í Argentínu en í Evrópu er hann óþekktara nafn. Hann féll með Elche úr efstu deild á Spáni fyrir þremur árum eftir að hafa tekið við liðinu á miðju tímabili. Eftir vonbrigðin á Spáni tók hann við Ekvador og er hann nú á góðri leið með að stimpla sig inn í hug og hjörtu Ekvadora.
Líklegt er að Ekvador mætir Englandi í 32-liða úrslitum, hvort að Beccacece nái að hrista önnur mögnuð úrslit úr erminni verður fróðlegt að sjá.

Que emocionante ver o técnico do Equador correr e comemorar com a família o gol da virada sobre a Alemanha. pic.twitter.com/rZW6NEonJW
— Pedro Ronchi (@PedroRonchi2) June 26, 2026