Fotbolti.net
26.06.26 - 01:02
Brynjar Ingi Erluson

HM: Þrjár þjóðir áfram - Erfið verkefni bíða í 32-liða úrslitum

Svíar eru komnir áfram þrátt fyrir að hafa hafnað í þriðja sæti

Svíar eru komnir áfram þrátt fyrir að hafa hafnað í þriðja sæti

Canon

Mynd: EPA

Holland og Japan eru komin áfram í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir að hafa endað í tveimur efstu sætum riðilsins. Svíþjóð fer einnig áfram sem ein af þjóðunum með bestan árangur í þriðja sæti. Öll þrjú lið eiga þó erfið verkefni fyrir höndum í 32-liða úrslitunum.
Hollendingar unnu 3-1 skyldusigur á Túnis á Arrowhead-leikvanginum í Kansas City í Bandaríkjunum og tryggðu sér toppsætið í riðlinum með sjö stig.

Þeir voru ekki lengi að koma sér í þægilega stöðu. Ellyes Skhiri varð fyrir því óláni að skora hrikalegt sjálfsmark strax á 3. mínútu þegar hann ætlaði að hreinsa fyrirgjöf Denzel Dumfries frá marki en þrumaði boltanum í eigið net.

Brian Brobbey bætti við öðru marki á 7. mínútu. Túnismenn voru í vandræðum með að hreinsa frá eftir aukaspyrnu, Virgil van Dijk hélt boltanum á lífi í teignum og kom honum til Brobbey sem skoraði sitt þriðja mark á mótinu.

Eftir það var þetta nokkuð þægilegt fyrir Hollendinga út fyrri hálfleikinn. Þeir leituðu að þriðja markinu til að drepa leikinn endanlega en voru ekkert að stressa sig sérstaklega mikið.

Túnis hefur aftur á móti átt skelfilegt mót og var á köflum að spila sig inn í umræðuna um slökustu lið sem sést hafa á heimsmeistaramóti.

Túnismenn klóruðu þó í bakkann í byrjun síðari hálfleiks þegar Hazem Mastouri stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Hollendingar voru þó ekki lengi að koma sér aftur í þægilega stöðu því Jan Paul van Hecke skoraði eftir hornspyrnu nokkrum mínútum síðar.

Hollendingar sáu leikinn út og tryggðu sér toppsætið í riðlinum. Þeir mæta Afríkumeisturum Marokkó í 32-liða úrslitum.

Öflug frammistaða hjá Japan

Japan er komið í 32-liða úrslit eftir 1-1 jafntefli gegn Svíþjóð á AT&T-leikvanginum í Arlington í Texas.

Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað og fá færi sem vert er að nefna. Besta færið kom undir lok hálfleiksins þegar Keito Nakamura fékk boltann við vítateigslínuna og stýrði honum í átt að fjærhorninu en Jacob Zetterström varði stórkostlega og hélt Svíum inni í leiknum.

Japanir komu grimmir út í síðari hálfleikinn og ógnuðu marki Svía nokkrum sinnum áður en Daizen Maeda kom þeim yfir eftir magnað samspil.

Ritsu Doan fékk boltann, laumaði honum inn á Maeda sem kláraði færið vel. Markið var sanngjarnt miðað við gang leiksins.

Japanir fengu hins vegar óvænt högg í andlitið á 62. mínútu. Anthony Elanga fékk boltann hægra megin, færði hann yfir á vinstri fótinn og hamraði honum í fjærhornið. Gullfallegt mark hjá Svíanum.

Markið kveikti í Svíum sem héldu áfram að pressa. Alexander Isak kom sér í góða stöðu en Zion Suzuki sá við honum í marki Japans.

Svíar voru líklegri á þessum tímapunkti. Elanga átti hörkuskot og þá átti Isak skalla sem Suzuki varði í uppbótartímanum.

Lokatölur urðu 1-1. Japan endaði í öðru sæti riðilsins og mætir Brasilíu í 32-liða úrslitum. Það bíður Svía einnig erfitt verkefni en þeir mæta líklega Frökkum, fari svo að Frakkland vinni I-riðilinn eins og telja verður líklegt.

Túnis 1 - 3 Holland
0-1 Ellyes Skhiri ('3 , sjálfsmark)
0-2 Brian Brobbey ('7 )
1-2 Hazem Mastouri ('54 )
1-3 Jan Paul van Hecke ('62 )

Japan 1 - 1 Svíþjóð
1-0 Daizen Maeda ('56 )
1-1 Anthony Elanga ('62 )
Japan hafnaði í öðru sæti

Japan hafnaði í öðru sæti

Canon

Mynd: EPA

Brian Brobbey skoraði þriðja HM-mark sitt

Brian Brobbey skoraði þriðja HM-mark sitt

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.