Sölvi ekki sáttur eftir 4-1 útisigur á Breiðabliki: Óskaði eftir viðbrögðum í hálfleik
Auglýsing

Sölvi Geir Ottesen.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Helgi Guðjónsson í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jason Daði er nafn sem hefur komið á borð Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Ég er sáttur með úrslitin en ég er ekki sáttur með fyrri hálfleikinn hjá okkur. Ég var eiginlega mjög ósáttur með hann. Við byrjuðum ágætlega en svo fannst mér eins og menn héldu að þetta yrði bara einfalt dagsverk," sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings eftir 4-1 útisigur á Breiðabliki í Bestu deildinni.
„Menn fóru að slaka á, ákvarðanatökur voru lélegar og við vorum langt frá þeim standard sem við viljum sýna. Við fórum vel yfir það í hálfleiknum og ég óskaði eftir viðbrögðum frá mönnum."

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
Sölvi segir að allt annað hafi verið að sjá til liðsins í seinni hálfleiknum.
„Við erum alltaf að horfa í okkar eigin frammistöðu, standardinn sem við höfum sjálfir sett. Hann var ekki til staðar í fyrri hálfleik. Við erum að keppast við að sýna frammistöðu í gegnum allan leikinn. Kannski er ég of harður að vilja að allir kaflar í gegnum 90 mínútur séu svona góðir."
Annar fótboltaleikur
Liðin eru að fara að mætast aftur á sunnudaginn, þá í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Sigurliðið mun mæta Fylki eða Aftureldingu í úrslitaleiknum. Er óþægilegt að mæta sama liði með svona stuttu millibili?
„Nei nei, þetta er annar fótboltaleikur. Ég er viss um að Blikar mæti tvíefldir til leiks og ætli að hefna fyrir þetta tap. Við þurfum bara að vera tilbúnir."
Býst við að Vatnhamar verði klár
Oliver Ekroth fyrirliði Víkings verður í banni í bikarleiknum gegn Breiðabliki en Sölvi býst við því að Gunnar Vatnhamar verði orðinn klár fyrir þann leik.
„Sjáum bara hvernig næstu dagar verða. Annars kom Viktor Örlygur frábærlega inn í hafsentinn. Við erum með hann kláran ef Gunnar verður ekki klár."
Jason Daði nafn sem hefur komið á borðið
Jason Daði Svanþórsson hefur verið orðaður við Víking. Eru Víkingar að horfa á leikmannamarkaðinn og er Jason leikmaður sem þeir horfa til?
„Við erum alltaf með augun á markaðnum. Jason er frábær fótboltaleikmaður og það nafn hefur komið á borð hjá okkur. Ég get ekki farið nánar út í það. Eigum við ekki að segja það bara?"
„Við erum alltaf að horfa í okkar eigin frammistöðu, standardinn sem við höfum sjálfir sett. Hann var ekki til staðar í fyrri hálfleik. Við erum að keppast við að sýna frammistöðu í gegnum allan leikinn. Kannski er ég of harður að vilja að allir kaflar í gegnum 90 mínútur séu svona góðir."
Annar fótboltaleikur
Liðin eru að fara að mætast aftur á sunnudaginn, þá í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Sigurliðið mun mæta Fylki eða Aftureldingu í úrslitaleiknum. Er óþægilegt að mæta sama liði með svona stuttu millibili?
„Nei nei, þetta er annar fótboltaleikur. Ég er viss um að Blikar mæti tvíefldir til leiks og ætli að hefna fyrir þetta tap. Við þurfum bara að vera tilbúnir."
Býst við að Vatnhamar verði klár
Oliver Ekroth fyrirliði Víkings verður í banni í bikarleiknum gegn Breiðabliki en Sölvi býst við því að Gunnar Vatnhamar verði orðinn klár fyrir þann leik.
„Sjáum bara hvernig næstu dagar verða. Annars kom Viktor Örlygur frábærlega inn í hafsentinn. Við erum með hann kláran ef Gunnar verður ekki klár."
Jason Daði nafn sem hefur komið á borðið
Jason Daði Svanþórsson hefur verið orðaður við Víking. Eru Víkingar að horfa á leikmannamarkaðinn og er Jason leikmaður sem þeir horfa til?
„Við erum alltaf með augun á markaðnum. Jason er frábær fótboltaleikmaður og það nafn hefur komið á borð hjá okkur. Ég get ekki farið nánar út í það. Eigum við ekki að segja það bara?"

Helgi Guðjónsson í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jason Daði er nafn sem hefur komið á borð Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 12 | +15 | 28 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 12 | -4 | 16 |
| 6 | ÍA | 11 | -5 | 15 |
| 7 | Keflavík | 11 | -7 | 12 |
| 8 | Stjarnan | 12 | -5 | 11 |
| 9 | ÍBV | 11 | -5 | 11 |
| 10 | KA | 11 | -6 | 10 |
| 11 | Þór | 11 | -19 | 7 |
| 12 | FH | 11 | -13 | 6 |