Áhorfendametið á HM slegið

Mynd: Af netinu

Mynd: Af netinu
Áhorfendametið á HM hefur verið slegið en þetta var tilkynnt á Met-Life leikvanginum í New Jersey í kvöld.
Áhorfendamet heimsmeistaramótsins féll þegar Ekvador vann frábæran 2-1 sigur á Þýskalandi og kom sér áfram í 32-liða úrslitin.
Nú hafa rúmlega 3,6 milljónir áhorfenda mætt á leiki HM, sem haldið er í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Fyrra metið var einmitt sett í Bandaríkjunum árið 1994, þegar tæplega 3,6 milljónir manna mættu á leikina.
Það skal þó hafa í huga að aðeins 24 þjóðir tóku þátt á því móti og var það síðasta HM með því sniði. Í ár eru þjóðirnar 48 og þegar hafa 56 leikir verið spilaðir.
Samt sem áður er þetta afar tilkomumikið, sérstaklega í ljósi þess að riðlakeppninni er ekki einu sinni lokið.

3,605,357@FIFAWorldCup 2026 is the highest attended tournament in history! ???? pic.twitter.com/ieDaDMJb3b
— FIFA (@FIFAcom) June 25, 2026