Eitt slakasta lið í sögu HM

Túnis er búið að fá á sig ellefu mörk

Mynd: EPA

Túnis er búið að fá á sig ellefu mörk

Mynd: EPA
Vegferð Túnis á þessu heimsmeistaramóti hefur verið ekkert annað en stórslys. Liðið hefur stimplað sig sem eitt slakasta lið í sögu heimsmeistaramótsins.
Túnis tapaði fyrsta leiknum gegn Svíþjóð, 5-1, og þjálfarinn var rekinn í kjölfarið.
Herve Renard var fenginn til að rétta úr kútnum en fékk lítinn tíma til að undirbúa liðið fyrir leikinn gegn Japan, sem tapaðist 4-0.
Nú er Túnis 2-0 undir gegn Hollandi eftir aðeins hálftímaleik. Fyrra markið var sjálfsmark frá Ellyes Skhiri, sem þrumaði boltanum í eigið net þegar hann reyndi að hreinsa frá. Brian Brobbey gerði síðan annað markið eftir að Túnis náði ekki að hreinsa aukaspyrnu almennilega frá.
Sjáðu annað mark Hollendinga
Túnis hefur nú fengið ellefu mörk á sig í keppninni og ef liðið heldur áfram á sömu braut gæti það endað riðlakeppnina með einni verstu varnarframmistöðu í sögu HM.
Mörg lið hafa átt skelfileg mót í gegnum tíðina. Saír, Haítí og El Salvador fengu öll 14 mörk á sig í riðlakeppni HM. Saír, sem heitir í dag Lýðveldið Kongó, fékk á sig 14 mörk á HM 1974, rétt eins og Haítí sama ár, á meðan El Salvador gerði það átta árum síðar.

Tunisia 0-1 Netherlands - Ellyes Skhiri own goal 3'
by
u/977x in
soccer