mán 26. júlí 2021 14:00
Elvar Geir Magnússon
Gray og Begovic í aðalhlutverkum þegar Everton vann í vító
Demarai Gray.
Demarai Gray.
Mynd: Getty Images
Demarai Gray skoraði í fyrsta leik sínum með Everton og þá var markvörðurinn Asmir Begovic hetjan þegar liðið vann Millonarios frá Kólumbíu í æfingamóti í Flórída.

Gray kom frá Bayer Leverkusen í síðustu viku og jafnaði leikinn í 1-1 af vítapunktinum eftir að Andres Llinas hafði komið Millonario yfir.

Leikurinn fór í vítakeppni þar sem Asmir Begovic, fyrrum markvörður Bournemouth, reyndist hetjan. Hann skoraði sjálfur af vítapunktinum og varði svo spyrnu Juan Moreno sem tryggði sigurinn.

Andros Townsend lék einnig sinn fyrsta leik í búningi Everton eftir að hafa komið á frjálsri sölu en samningur hans við Crystal Palace rann út, Hann átti stangarskot í leiknum.

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki með Everton í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner