KV hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í Lengjudeildinni því Bele Alomerovic er kominn á láni út tímabilið frá Val.
Bele er fæddur árið 2004 og er efnilegur miðjumaður sem uppalinn er hjá Val.
Bele er fæddur árið 2004 og er efnilegur miðjumaður sem uppalinn er hjá Val.
Faðir Bele er Fikret sem lék á sínum tíma 26 leiki með Val á árunum 2000 og 2001.
Bele hefur leikið nokkra leiki á undirbúningstímabilinu með Val en á enn eftir að spila keppnisleik í meistaraflokki. Í sumar hefur hann spilað með 2. flokki Vals/KH.
KV er í 11. sæti Lengjudeildarinnar með sjö stig eftir þrettán leiki. Næsti leikur KV er gegn Kórdrengjum í kvöld en Bele fær ekki leikheimild fyrr en á morgun.
Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti í kvöld.
Lengjudeildin
þriðjudagur 26. júlí
18:30 Fjölnir-Fylkir (Extra völlurinn)
19:15 Selfoss-Afturelding (JÁVERK-völlurinn)
19:15 KV-Kórdrengir (KR-völlur)
miðvikudagur 27. júlí
18:00 Grindavík-Þór (Grindavíkurvöllur)
19:15 HK-Grótta (Kórinn)
20:00 Vestri-Þróttur V. (Olísvöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir