26.08.26 - 20:43
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Frábær frumraun hjá Savio - Barnes skaut Newcastle áfram

Savio skoraði og lagði upp í fyrsta leik

Mynd: Tottenham

Harvey Barnes var öflugur hjá Newcastle

Mynd: EPA

Newcastle United og Tottenham eru komin áfram í 3. umferð enska deildabikarsins eftir sigra í kvöld.
Tottenham vann öruggan 5-1 sigur á C-deildarliði Charlton í Lundúnum.
Það tók heimamenn dágóðan tíma að brjóta vörn Charlton á bak aftur þrátt fyrir mikla yfirburði. Ísinn brotnaði loks á 41. mínútu þegar hinn nítján ára Mikey Moore fékk boltann við vítateigslínuna og þrumaði honum glæsilega upp í hægra hornið.
Dominic Solanke bætti öðru markinu við nokkrum mínútum síðar. Moore náði þá að pota boltanum til hans inni í teignum og Solanke skoraði með laglegu skoti.
Kevin Danso gerði þriðja markið þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir. Hann skallaði þá aukaspyrnu Mateus Fernandes í netið en gat lítið fagnað eftir að hafa fengið þungt högg í skallaeinvíginu.
Savio (Savinho) lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir komuna frá Manchester City. Hann kom inn á þegar tuttugu mínútur voru eftir og náði bæði að skora og leggja upp mark fyrir Ben Davies. Frábær innkoma hjá honum.

TENGT EFNI
Savinho breytir nafninu eftir skiptin og er nú Savio
Charlton klóraði í bakkann undir lokin en lengra komust gestirnir ekki. Tottenham fagnaði því öruggum fyrsta sigri tímabilsins.
Newcastle United þurfti á sama tíma að hafa verulega fyrir 3-2 sigri á WBA.
Isaac Price kom WBA yfir á 19. mínútu með lúmsku aukaspyrnumarki. Antonin Kinsky átti ekki von á skotinu sem minnti talsvert á mark Antons Stach fyrir Leeds um helgina.
Newcastle jafnaði á 38. mínútu þegar nýju mennirnir Amar Dedic og Bazoumana Toure tengdu vel saman. Dedic sendi boltann inn á teig frá hægri og Toure potaði honum yfir línuna.
Harvey Barnes kom Newcastle yfir snemma í síðari hálfleik með skoti af stuttu færi eftir mikinn darraðadans í vítateig WBA.
Gestirnir jöfnuðu þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir eftir að Lewis Hall handlék boltann innan teigs. Þetta var önnur vítaspyrnan sem Hall fær dæmda á sig á nokkrum dögum en Price steig á punktinn og skoraði sitt annað mark.
Jafnræðið entist þó aðeins í fjórar mínútur. Barnes skoraði þá sigurmark Newcastle inni í teignum eftir aðra stoðsendingu Dedic í leiknum.
Baráttusigur hjá Newcastle sem tryggði sér sæti í næstu umferð.
Newcastle 3 - 2 West Brom
0-1 Isaac Price ('19 )
1-1 Bazoumana Toure ('38 )
2-1 Harvey Barnes ('48 )
2-2 Isaac Price ('77 , víti)
3-2 Harvey Barnes ('81 )
Tottenham 5 - 1 Charlton Athletic
1-0 Mikey Moore ('41 )
2-0 Dominic Solanke ('45 )
3-0 Kevin Danso ('67 )
4-0 Savio ('82 )
5-0 Ben Davies ('85 )
5-1 Lloyd Jones ('87 )