26.08.26 - 22:54
Brynjar Ingi Erluson
Segir Aston Villa hafa lagt fram tilboð í Leao

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio fullyrðir að Aston Villa hafi lagt fram 38,5 milljóna punda tilboð í Rafael Leao, leikmann AC Milan á Ítalíu.

TENGT EFNI
Leggja fram 45 milljóna evra tilboð í Leao
Fyrr í dag var greint frá því að Aston Villa hefði dregið sig úr baráttunni um Leao og ætlaði þess í stað að einbeita sér að öðrum skotmörkum.
Skömmu síðar fullyrtu tyrkneskir fjölmiðlar að Galatasaray hefði náð samkomulagi við Milan um kaup á Portúgalanum.
Sky á Ítalíu segir Villa nú hafa ákveðið að veita Galatasaray samkeppni og lagt fram 38,5 milljóna punda tilboð í Leao.
Grunnupphæðin er svipuð þeirri sem Galatasaray bauð en árangurstengdar greiðslur gera tilboð tyrknesku meistaranna örlítið hærra.
Athletic segir Villa þó sannfært um að Leao vilji frekar ganga til liðs við enska félagið en Galatasaray.