Fotbolti.net
26.09.15 - 16:26
Magnús Þór Jónsson

Ásmundur: Ég er dreifbýlistútta

Auglýsing
Ásmundur: Ég er dreifbýlistútta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Ásmundur þjálfari ÍBV var \"súrglaður\" í dag eftir að hans liði tapaði fyrir Breiðablik.  Á sama tíma tryggðu Vestmanneyingar þó sæti sitt þar sem Leiknismenn töpuðu fyrir KR.



\"Við ætluðum að liggja til baka og beita skyndisóknum í dag.  Gekk nokkuð vel, þeir sköpuðu sér lítið en það vantaði herslumuninn\"
Vestmanneyingar eru öruggir fyrir síðustu umferð eftir dýrmætt stig um síðustu helgi.  Var meiri efstudeildarreynsla það sem taldi í lokin í baráttunni við Leiknismenn?



\"Við höfum bjargað okkur sjálfir í undanförnum leikjum, það var stórleikur á Leiknisvelli á sínum tíma og stigið um síðustu helgi var mjög dýrmætt.  Það verða svo aðrir að meta hvort að reynslan skipti máli, en eitthvað var það.\"



Ásmundur var ráðinn þjálfari ÍBV út tímabilið, hefur hann eitthvað velt fyrir sér framhaldinu - verður hann áfram í dreifbýlinu?



\"Ég er dreifbýlistútta, það er alveg rétt hjá þér en við ætlum að klára þetta mót og vita hver staðan er, það er ekkert farið að ræða nein mál í þessu sambandi.\"



Nánar er rætt við Ásmund í viðtalinu sem fylgir.



 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.