Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 26. september 2020 14:16
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Brighton og Man Utd: Trossard bestur
Mynd: Getty Images
Leandro Trossard var maður leiksins er Brighton tapaði gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn bauð uppá gríðarlega dramatík þar sem heimamenn voru mun betri en töpuðu samt. Fimm mínútum var bætt við og gerði Brighton jöfnunarmark á 95. mínútu. Sigurmark Man Utd kom úr vítaspyrnu á 100. mínútu.

Trossard var gríðarlega líflegur í liði heimamanna en tókst ekki að skora. Hann skaut tvisvar í stöng og einu sinni í slánna í leiknum.

Neal Maupay, sem fékk dæmda vítaspyrnu á sig eftir lokaflautið, var versti maður vallarins með 5 í einkunn frá Sky Sports.

Enginn þótti skara framúr eða vera áberandi slakur í liði Rauðu djöflanna þar sem menn fengu ýmist 6 eða 7 í einkunn.

Brighton: Ryan (6), Lamptey (7), White (6), Dunk (6), Webster (6), March (7), Alzate (7), Lallana (6), Trossard (8), Connolly (6), Maupay (5).
Varamenn: Gross (5), Jahanbakhsh (6)

Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (6), Lindelof (7), Maguire (6), Shaw (6), Matic (7), Pogba (6), Fernandes (7), Greenwood (6), Martial (6), Rashford (7).
Varamaður: Fred (6),
Athugasemdir
banner
banner
banner