Fotbolti.net
26.09.26 - 17:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Albert sárþjáður - Verkefninu lokið hjá honum?

Albert sárþjáður - Verkefninu lokið hjá honum?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Albert Guðmundsson þurfti af fara af velli eftir 28 mínútur í leik Íslands og Eistlands sem er núna í gangi.

„Albert í hörðu samstuði við Eista og hann liggur eftir og kallar strax á teymið. Hann lenti ansi harkalega," skrifaði Magnús Atlason í textalýsingu frá leiknum.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
Albert fékk aðhlynningu á vellinum og þurfti svo að fara af velli sárþjáður.

Albert hélt utan um vinstri öxlina þegar hann fór af velli, en þetta leit alls ekki vel út.

Það eru þrír aðrir leikir eftir í verkefninu og spurning hvort Albert komi eitthvað meira við sögu í leikjunum sem eru framundan.

Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á fyrir Albert og er að spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir Ísland.
Albert sárþjáður - Verkefninu lokið hjá honum?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Albert sárþjáður - Verkefninu lokið hjá honum?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.