Fotbolti.net
26.09.26 - 12:43
Brynjar Ingi Erluson

De Gea spyr hversu marga titla hann hefur nú unnið

David De Gea

David De Gea

Canon

Mynd: EPA

David De Gea, fyrrum markvörður Manchester United, ákvað að skjóta létt á Manchester City eftir að félagið var dæmt fyrir brot á reglum ensku úrvalsdeildarinnar í gær.
Refsingarnar sem Man City gæti fengið
TENGT EFNI

Refsingarnar sem Man City gæti fengið

Man City var dæmt sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna misalvarlegra brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Ekki hefur enn verið ákveðið hver refsingin verður, en meðal þess sem hefur verið nefnt er að félagið gæti mögulega verið svipt titlum.

Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2018 og á þeim tíma varð City þrisvar Englandsmeistari. Man Utd hafnaði í tvígang í öðru sæti á eftir nágrönnum sínum.

De Gea, sem varð Englandsmeistari með United árið 2013, gat því ekki stillt sig um að skjóta létt á Man City.

„Jæja, ræðum aðeins málin. Hversu marga Englandsmeistaratitla hef ég þá unnið?“ sagði De Gea og náði með því að hækka púlsinn hjá ansi mörgum á X.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.