Fotbolti.net
26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Deco: Sýndum Inter og Lautaro virðingu

Deco: Sýndum Inter og Lautaro virðingu
Canon

Mynd: EPA

Deco er yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona og tjáði sig um áhuga Spánarmeistaranna á Lautaro Martínez, framherja Inter og argentínska landsliðsins.
Lautaro hafnaði viðræðum við Barcelona
TENGT EFNI

Lautaro hafnaði viðræðum við Barcelona

Lautaro er goðsögn hjá Inter og ber fyrirliðaband félagsins. Hann hefur verið hjá Inter frá 21 árs aldri, síðan 2018, og tekist að skora 179 mörk í 381 leik fyrir félagið - auk þess að gefa 57 stoðsendingar.

Hann er 29 ára gamall og er kominn með fjögur mörk og eina stoðsendingu í fimm fyrstu leikjunum á nýju tímabili.

„Lautaro er goðsögn hjá Inter og við berum mikla virðingu fyrir því. Hann er stórkostlegur og einstakur leikmaður, hann er fyrirliði Inter," sagði Deco. „Við höfðum áhuga á Lautaro og sendum fyrirspurn á Inter, en félagið svaraði að leikmaðurinn væri ekki til sölu. Af virðingu við leikmanninn og félagið létum við kyrrt liggja og snérum okkur að næsta skotmarki.

„Við viljum alltaf gera hlutina á réttan hátt. Það er eðlilegt að fjölmiðlar séu með getgátur og að það spretti upp orðrómar, það er partur af starfinu, en fyrir okkur er mikilvægt að vera með gott orðspor í fótboltaheiminum. Það er mikilvægt að samskipti á milli félagsliða séu skýr og heiðarleg.

„Við höfum aldrei sett okkur í beint samband við Lautaro Martínez eða umboðsmann hans. Við höfum áhuga á honum sem fótboltamanni, það er satt, en hann er ekki til sölu."


Lautaro er með 40 mörk í 84 landsleikjum með Argentínu og getur búist við að spila stærri rullu eftir að Lionel Messi lagði landsliðsskóna á hilluna.
Deco: Sýndum Inter og Lautaro virðingu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.