Fotbolti.net
25.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Deco þverneitar: Tengjumst þessu máli ekki neitt

Deco þverneitar: Tengjumst þessu máli ekki neitt
Canon

Mynd: EPA

Táningurinn JJ Gabriel hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið þar sem hann getur bráðum skrifað undir atvinnumannasamning þegar hann fagnar 16 ára afmæli í október.
Fimmtán ára leikmaður Man Utd skoraði þrennu og setti met
TENGT EFNI

Fimmtán ára leikmaður Man Utd skoraði þrennu og setti met

Gabriel þykir gríðarlega mikið efni og var í akademíunum hjá Arsenal, Chelsea og West Ham áður en hann skipti yfir til Manchester United fyrir fjórum árum.

Þá var Gabriel aðeins 11 ára gamall. Hann hefur síðan þá keppt 10 keppnisleiki með unglingalandsliðum Englands og núna vill hann skipta um félag.

Stærstu félög fótboltaheimsins hafa verið orðuð sterklega við Gabriel og eru Spánarmeistarar Barcelona þar á meðal. Michael Carrick, þjálfari Man Utd, hefur ítrekað í viðtölum að það sé mikilvægt að fara varlega í allri umfjöllun um Gabriel sem er ennþá barn.

„Ég hef ekkert að segja um þennan strák. Það er eðlilegt að leikmenn séu orðaðir við okkur, Barcelona nafnið er mjög aðlaðandi fyrir fjölmiðla, en staðreyndin er sú að við höfum engan áhuga á leikmönnum sem eru í sömu stöðu og hann. Ég veit ekki nákvæmlega hvað er í gangi, ef hann er ennþá leikmaður Manchester United. Við tengjumst þessu máli ekki neitt," sagði Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, á fréttamannafundi.

„Í fyrsta lagi þá myndum við þurfa að skilja stöðuna áður en við gætum gert eitthvað. Við viljum ekki tala um unga táningsleikmenn, þetta kemur okkur ekki við."

Þessi orð koma á óvart í ljósi fregna af ferðalagi Gabriel til Barcelona skömmu eftir að hafa tilkynnt Man Utd að hann ætlaði ekki að skrifa undir atvinnumannasamning við félagið.

Real Madrid, FC Bayern og PSG eru meðal félagsliða sem eru einnig orðuð við táninginn.
Deco þverneitar: Tengjumst þessu máli ekki neitt
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Deco þverneitar: Tengjumst þessu máli ekki neitt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.