26.09.26 - 18:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári: Mikill andi og hiti á Instagram en ekki í leiknum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska landsliðið olli miklum vonbrigðum í dag þegar liðið gerði jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leiknum í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Kári Árnason, sérfræðingur á Sýn Sport var mjög ósáttur með andann í liðinu.
Kári Árnason, sérfræðingur á Sýn Sport var mjög ósáttur með andann í liðinu.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Vonbrigði á Laugardalsvelli
„Það verður að auka orkustigið, þetta er flatt. Maður sér Instagram myndbönd af æfingum og þá er mikill hiti og menn að láta hvorn annan finna fyrir því," sagði Kári.
„Einu skiptin sem við fögnum og erum hvetjandi er þegar Hákon er að bjarga liðinu. Það er hægt að hvetja menn áfram ef eitthvað er gott og fá smá anda í þetta. Það er ekki fyrr en Gylfi kemur inn á þá byrjar hann að öskra á menn. Svo tekur Stefán Teitur undir. Það vantar pínu líf í þetta."