26.09.26 - 10:29
Brynjar Ingi Erluson
Markvörðurinn vill ekki spila gegn Ísrael - Nokkrir íhuga að fylgja honum

Gavin Bazunu vill ekki spila við Ísrael

Mynd: EPA

Gavin Bazunu vill ekki spila við Ísrael

Mynd: EPA
Gavin Bazunu, markvörður írska landsliðsins, hefur tjáð leikmannahópnum að hann vilji ekki spila gegn Ísrael í Þjóðadeildinni á morgun og eru nokkrir leikmenn sagðir íhuga að fylgja hans fordæmi. Þetta segir blaðamaðurinn Dan McDonnell á X í dag.

TENGT EFNI
Heimir og Írar frestuðu fréttamannafundinum - „Ég er enginn hálfviti“
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans hafa rætt mikið um leikinn gegn Ísrael sem á að fara fram í Ungverjalandi á morgun. Írska sambandið hefur áður staðfest að ólíkar skoðanir séu innan leikmannahópsins og að engum líði sérstaklega vel með að þurfa að spila leikina gegn Ísrael.
Heimir og einn leikmaður írska landsliðsins áttu að mæta á fréttamannafund í morgun en honum var frestað. Samkvæmt fregnum átti yfirlýsing frá leikmannahópnum að koma fyrir fundinn en síðar var greint frá því að hún myndi koma eftir æfingu liðsins.
Samkvæmt McDonnell var æfingunni einnig frestað. Hann greinir jafnframt frá því að Bazunu hafi sagt liðsfélögum sínum á fundi í gær að hann vilji ekki spila gegn Ísrael og að fleiri leikmenn íhugi að fylgja hans fordæmi. Þær upplýsingar hafa þó ekki verið staðfestar opinberlega af írska fótboltasambandinu.
Óvissa ríkir því um stöðuna fyrir leikinn, þótt írska sambandið hafi fram að þessu staðið fast á því að liðið muni mæta til leiks. Sambandið ákvað að spila leikina eftir atkvæðagreiðslu þar sem sú ákvörðun fékk 68 prósent stuðning.
Mikil óánægja hefur verið á Írlandi með að landsliðið þurfi að mæta Ísrael vegna hernaðaraðgerða Ísraels á Gaza og hafa bæði stjórnarmenn sambandsins og leikmenn lýst vanlíðan yfir stöðunni.