Fotbolti.net
26.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé býst ekki við að spila til fertugs

Mbappé býst ekki við að spila til fertugs
Canon

Mynd: EPA

Franska ofurstjarnan Kylian Mbappé hefur verið að gefa kost á sér í viðtöl um alla Evrópu og svaraði spurningum frá BILD á dögunum.
Mbappe: Svona er að vera keppnismanneskja
TENGT EFNI

Mbappe: Svona er að vera keppnismanneskja

Hann var meðal annars spurður út í Cristiano Ronaldo sem Mbappé hefur talað mjög vel um í gegnum tíðina og Antonio Rüdiger, þýskan liðsfélaga sinn hjá Real Madrid.

„Franska landsliðið myndi aldrei leyfa mér að spila þegar ég er kominn yfir fertugt!" svaraði Mbappé brosandi þegar hann var spurður hvort markmiðið væri að spila jafn lengi og Ronaldo.

„Cristiano hefur tekist að sanna hvað er hægt að gera með því að vera í fullkomnu standi bæði líkamlega og andlega. Það er ótrúlegt hversu lengi hann hefur verið að spila í hæsta gæðaflokki. Í mínu tilfelli þá sé ég það ekki gerast."

Mbappé hefur komið með beinum hætti að 108 mörkum í 111 fyrstu keppnisleikjum sínum með Real og er hrifinn af liðsfélaga sínum Rüdiger.

„Rudiger er fullkomið dæmi um hvers vegna maður á aldrei að dæma einstakling útfrá því hvernig hann hagar sér innan vallar.

„Rudiger er til dæmis snarklikkaður á vellinum en hann gjörbreytist um leið og komið er inn í búningsklefann. Hann verður annar maður."
Mbappé býst ekki við að spila til fertugs
Canon

Mynd: EPA

Mbappé býst ekki við að spila til fertugs
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.