26.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Raphinha fær tíuna frá Neymar

Raphinha skartaði tíunni gegn Ástralíu.

Mynd: EPA

Neymar skoraði 80 mörk í 130 landsleikjum.

Mynd: EPA

Raphinha skartaði tíunni gegn Ástralíu.

Mynd: EPA
Brasilíski sóknarleikmaðurinn Raphinha klæddist treyju númer 10 í jafntefli í æfingalandsleik gegn Ástralíu í gær.

TENGT EFNI
Sjáðu frábært aukaspyrnumark og Rayan bjarga Brössum í vináttulandsleik
Það virðist þar með vera staðfest að Raphinha tekur við treyjunúmerinu fræga af Neymar sem er búinn að leggja landsliðsskóna á hilluna.
Pelé er án nokkurs vafa frægasta tía í sögu Brasilíu en á eftir honum koma goðsagnir á borð við Zico, Ronaldinho, Rivaldo og Kaká sem hafa einnig klæðst treyjunni.
Raphinha, sem fagnar þrítugsafmæli í desember, hefur skorað 11 mörk í 41 landsleik með Brasilíu. Hann hefur verið í feykistuði með Spánarmeisturum Barcelona á upphafi nýs keppnistímabils þar sem hann er kominn með 14 mörk og 3 stoðsendingar í 8 leikjum.
Raphinha hafði hingað til klæðst treyju númer 11 með landsliðinu, eftir að hafa prófað tíuna í stutta stund þegar Neymar var að glíma við meiðsli fyrir nokkrum árum.
Rodrygo hefur einnig klæðst tíunni með Brasilíu en Raphinha virðist vera kominn með treyjuna útaf fyrir sig.