26.09.26 - 12:26
Brynjar Ingi Erluson
Rodri um dóminn: Ekki hægt að taka það af okkur

Rodri

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Rodri

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Rodri hefur tjáð sig um málið sem er á allra vörum, en Manchester City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Refsingarnar sem Man City gæti fengið
Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2018 og eru misalvarleg, en enn hefur ekki verið ákveðið hver refsingin verður.
Talað hefur verið um stigafrádrátt, háar sektir, félagaskiptabann og jafnvel að félagið verði fellt niður um deild og svipt titlum.
Rodri, sem kom til Man City frá Atlético Madríd árið 2019, var spurður út í dóminn og segir að hvað sem gerist verði ekki hægt að taka frá leikmönnunum það sem þeir afrekuðu hjá félaginu.
„Þetta er öðruvísi fyrir okkur leikmennina en fyrir ykkur. Ég skil skoðanir fólks, en við reynum að horfa á þetta með jákvæðum augum. Þegar þú ert þarna á hverjum degi sérðu hversu mikið fólk leggur á sig til að ná þessum árangri, allt starfsfólkið, eigendurna og alla þá sem vinna í kringum liðið, ekki bara Pep og leikmennina. Það er ekki hægt að taka það frá okkur sem við afrekuðum.“
„Það var ekki keypt með peningum heldur með vinnu, samstöðu og því að leggja allt í sölurnar á hverjum degi.“
„Við náðum miklum árangri saman og hann var fyllilega verðskuldaður. Ég er stoltur af því að hafa fengið að vera hluti af einu besta tímabili í sögu enska fótboltans,“ sagði Rodri.
Hann segist alltaf hafa trúað því að félagið sé saklaust og að stjórnarmenn hafi fullvissað leikmenn og þjálfara um það.
„Þeir hafa alltaf sagt okkur að þeir séu fullvissir um sakleysi sitt. Þegar þú talar við fólkið augliti til auglitis finnurðu hvort það trúir því sem það segir og ég hef aldrei fundið fyrir neinum ótta eða stressi hjá félaginu vegna þessa máls.“
„Ég er ekki að segja að svona sé eðlilegt, en mörg félög lenda í svona málum og þetta er hluti af fótboltanum. Öll félög þurfa að fylgja reglunum, sem er auðvitað rétt, en hjá City eru menn sannfærðir um að þeir hafi ekki gert neitt rangt og við höfum trúað þeim.“
„Við stöndum með félaginu þangað til annað kemur í ljós. Ég hef verið þarna og veit hvernig menn vinna og það er það eina sem ég get sagt,“ sagði Rodri.
Spánverjinn yfirgaf Man City í sumarglugganum og gekk til liðs við Barcelona, en undirbýr sig nú fyrir erilsamt verkefni með spænska landsliðinu í Þjóðadeildinni.