26.09.26 - 13:11
Brynjar Ingi Erluson
„Wirtz kom til Liverpool á mjög óheppilegum tíma“

Florian Wirtz

Mynd: EPA

Diogo Jota lést tveimur vikum eftir að Wirtz gekk í raðir Liverpool

Mynd: EPA

Florian Wirtz

Mynd: EPA
Jürgen Klopp, þjálfari þýska landsliðsins, segir Florian Wirtz hafa gengið til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen á mjög óheppilegum tíma, en telur hann nú vera farinn að finna sig eftir lærdómsríkt fyrsta ár.

TENGT EFNI
Kroos skaut á Wirtz en Klopp kom honum til varnar
Wirtz kom til Liverpool á síðasta ári fyrir 100 milljónir punda (116 með árangurstengdum greiðslum), en aðeins um tveimur vikum síðar lést Diogo Jota, leikmaður liðsins, í hræðilegu bílslysi.
Það tók verulega á leikmannahópinn og segir Klopp að það hafi verið ein af ástæðunum fyrir því að Wirtz hafi ekki fundið sig nægilega vel á sínu fyrsta tímabili.
„Ef þú horfir á allt samhengið þá gekk Flo í raðir Liverpool á mjög óheppilegum tíma.“
„Hann kom þegar Diogo Jota lét lífið og gekk til liðs við félag þar sem fótboltinn var skyndilega ekki lengur í forgangi, sem er mjög skiljanlegt. Hann lærði hins vegar mikið á sínu fyrsta ári.“
„Núna er komið nýtt tímabil undir nýjum stjóra og ég held að hann hafi byrjað alla leikina. Líkamlega er hann í góðu standi og liðið er smám saman að finna sitt gamla sjálf. Sóknarsinnaðir leikmenn þurfa fúnkerandi lið í kringum sig.“
„Allir sem elska fótbolta sjá hversu stórkostlegur leikmaður Flo Wirtz er. Við getum ekki gert meira en við erum að gera hér, byggja hann upp með æfingum, spilatíma og trausti.“
„Smátt og smátt viljum við gefa honum öryggi og góða tilfinningu áður en við sendum hann aftur til Liverpool. Ég óska honum alls hins besta,“ sagði Klopp.