18.09.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Kroos skaut á Wirtz en Klopp kom honum til varnar

Toni Kroos skaut létt á Wirtz

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Florian Wirtz hefur fengið mikla gagnrýni

Mynd: EPA

Jürgen Klopp

Mynd: EPA

Toni Kroos skaut létt á Wirtz

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jürgen Klopp, þjálfari þýska landsliðsins, hefur komið landa sínum Florian Wirtz til varnar eftir mikla gagnrýni á frammistöðu hans undanfarna mánuði.

TENGT EFNI
Engin áform um að fá Wirtz aftur til Þýskalands
Toni Kroos, fyrrum leikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, skaut létt á Florian Wirtz fyrir frammistöðu hans á HM í hlaðvarpsþætti sem hann stýrir ásamt bróður sínum, Felix.
Felix spurði bróður sinn hvaða þrjá leikmenn, sem hefðu ekki verið í HM-hópnum hjá Julian Nagelsmann, Klopp ætti að velja fyrir komandi verkefni. Kroos svaraði:
„Aleksandar Pavlovic, Florian Wirtz og Jamal Musiala.“
Felix var steinhissa enda voru þeir allir í hópnum og tók það hann smástund að átta sig á gríninu.
„Ha? Hvaða heimsmeistaramóti misstu þeir af? Ah, af því þeir voru ósýnilegir á mótinu?“ sagði Felix, en Þjóðverjar duttu óvænt út í 32-liða úrslitum eftir tap gegn Paragvæ.
Klopp kom Wirtz til varnar
Wirtz átti ekki gott heimsmeistaramót og síðasta tímabil með Liverpool var sömuleiðis vonbrigði. Hann hefur heldur ekki enn fundið sitt besta form á þessari leiktíð.
Klopp valdi hann engu að síður í 44 manna landsliðshóp sinn fyrir Þjóðadeildina og hefur komið honum til varnar.
„Samtöl mín við Florian hafa verið mjög ánægjuleg. Við erum í sambandi öðru hvoru. Ég held að hann sé sá leikmaður Liverpool sem hefur hlaupið mest á tímabilinu þannig að viljinn er klárlega til staðar.“
„Við verðum að losa okkur við þá hugmynd að við þurfum alltaf að sjá einhver sérstök augnablik frá honum. Hann er hér til að hjálpa okkur sem liði og við verðum að sjá til þess að honum líði vel hjá okkur.“
„Þegar liðið vinnur saman mun hver einasti leikmaður skína. Við verðum líka að geta verið ánægð með leik þar sem Wirtz gefur allt sitt þó hann sé ekki með mark eða stoðsendingu.“
„Við verðum að gefa stráknum þá tilfinningu: ‚Þetta var meira en gott í dag. Þú hjálpaðir liðinu og við unnum 1-0 eða 2-0.‘ Svo sitja sparkspekingarnir þarna og ræða af hverju þetta sé samt ekki að ganga upp hjá honum. Það eru jafn margar ástæður til að segja að hann sé að spila frábærlega. Nú tökum við næstu skref saman og það á við um Flo og alla hina,“ sagði Klopp.