Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. október 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marcelo á leið aftur heim
Marcelo er líklega á sínu síðasta tímabili með spænska stórveldinu.
Marcelo er líklega á sínu síðasta tímabili með spænska stórveldinu.
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Marcelo er líklega á sínu síðasta tímabili með spænska stórveldinu Real Madrid.

Marcelo hefur spilað meira en 500 leiki með spænska stórveldinu frá því hann gekk í raðir félagsins árið 2007.

Það er farið að hægjast á þessum hæfileikaríka leikmanni og herma fjölmiðlar á Spáni að hann sé á förum annað þegar samningur hans klárast eftir tímabilið.

Marcelo er ekki mikilvægur hluti af liði Real Madrid lengur og má hann fara annað.

El Nacional segir að Marcelo sé búinn að ákveða næsta áfangastað sinn. Hann sé á leið til Fluminense í heimalandinu - Brasilíu - þar sem hann hóf ferilinn.
Athugasemdir
banner
banner