Fotbolti.net
26.10.26 - 12:35
Elvar Geir Magnússon

Af hverju er gullboltahátíðin í London?

Gullboltinn verður afhentur í kvöld.

Gullboltinn verður afhentur í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Sigurvegari Ballon d'Or gullboltans verður tilkynntur í London í kvöld.

Veðbankar telja Harry Kane, markahrók Bayern München og fyrirliða enska landsliðsins, vera sigurstranglegastan. Spænski kantmaðurinn Lamine Yamal og franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe koma þar á eftir, og svo Lionel Messi.
Að undanskildum árunum 2010–2015, þegar verðlaunaafhendingin fór fram í Sviss, hefur Ballon d’Or-hátíðin verið haldin í Frakklandi, og síðustu sjö ár í Théatre du Chatelet í París.

Í ár fer viðburðurinn hins vegar fram í Palladium-leikhúsinu í Lundúnum, sem gæti verið góður fyrirboði fyrir Kane.

UEFA skýrði frá því í maí að val á staðsetningu væri táknrænt og ætlað að heiðra Stanley Matthews, sem hlaut verðlaunin fyrstur alla. Hann tók við þeim í ráðhúsi Blackpool-borgar. Nú, sjötíu árum síðar, og eftir að hafa öðlast enn meiri glæsileika og ljóma í gegnum áratugina, snýr viðburðurinn aftur til Englands.

Kynnir kvöldsins verður Thierry Henry, goðsögn hjá Arsenal og franska landsliðinu. Honum til halds og trausts verður Kate Scott, sem kynnir hátíðina í fjórða sinn.


Thierry Henry verður kynnir.

Thierry Henry verður kynnir.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.