26.10.26 - 12:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Johannes Vall yfirgefur ÍA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Johannes Vall hefur yfirgefið ÍA eftir fimm tímabil hjá félaginu. Samningur hans er að renna út.
Sænski vinstri bakvörðurinn kom í ÍA frá Val eftir tímabilið 2021 og var lykilmaður í liðinu fyrstu þrjú tímabilin.
Hann lék sérstaklega vel þegar ÍA lék í þriggja miðvarða kerfi og gat verið í meira sóknarhlutverki. Tímabilið 2024 skoraði hann fjögur mörk og lagði upp níu í liði Skagamanna í Bestu deildinni.

Hann er 34 ára og Skagamenn þakka honum fyrir allar minningarnar.
Úr tilkynningu ÍA
Johannes kom til ÍA í janúar árið 2022 og hefur síðan þá verið einn af bestu bakvörðum í íslensku deildinni og sannkallaður máttarstólpi í okkar liði. Hann hefur spilað 164 leiki fyrir félagið og skorað 10 mörk. Hann hefur frá fyrsta degi fallið einstaklega vel inn í samfélagið okkar hér á skaganum. Johannes hefur alla tíð leikið fyrir félagið af heilum hug, sýnt mikla tryggð og verið frábær fulltrúi ÍA jafnt innan vallar sem utan.
Kæri Johannes, við þökkum þér af öllu hjarta fyrir árin í gulu treyjunni, allar minningarnar og allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Þú og fjölskylda þín verðið alltaf hluti af Skagafjölskyldunni.