Fotbolti.net
26.10.26 - 11:19
Elvar Geir Magnússon

Eiríkur Raphael á að koma Val upp aftur (Staðfest)

Eiríkur Raphael Elvy.

Eiríkur Raphael Elvy.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Eiríkur Raphael Elvy hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val.

Eiríkur kom til Vals fyrir síðasta tímabil sem hluti af þjálfarateymi meistaraflokks kvenna og aðalþjálfari 2. flokks.

„Hann kom inn af miklum krafti og mikil ánægja hefur verið með störf hans. Eiríkur er með UEFA A þjálfararéttindi og var áður hluti af þjálfarateymi Breiðabliks sem varð Íslands- og bikarmeistari árið 2025," segir í tilkynningu Vals.
Árangur liðsins í sumar var ekki ásættanlegur og liðið féll úr Bestu deildinni. Matthías Guðmundsson lét af störfum eftir fallið.

„Verkefnið fram undan er skýrt: að bæta liðið og fara beint aftur upp," segir í tilkynningu Vals.

Eiríkur Raphael Elvy:

„Ég er virkilega þakklátur fyrir traustið. Þetta er spennandi leikmannahópur með mikil gæði og stelpurnar hafa sýnt það á hverri æfingu að þær eru hungraðar í að gera betur. Verkefnið er stórt og ég get ekki beðið eftir því að byrja. Valur er lið sem á að vera í efstu deild en markmiðið nær lengra en það. Við erum að horfa á þetta sem þriggja ára vegferð þar sem við ætlum að koma liðinu aftur í fremstu röð," segir Eiríkur.

Samningur Eiríks er til þriggja ára en honum til aðstoðar verður Sverrir Kristinsson og Hilmar McShane verður áfram styrktarþjálfari liðsins.
Eiríkur Raphael á að koma Val upp aftur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.