Fotbolti.net
26.10.26 - 11:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Albin Skoglund áfram hjá Val (Staðfest)

Albin Skoglund áfram hjá Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænski sóknarmaðurinn Albin Skoglund hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Val en fyrri samningur hefði runnið út í næsta mánuði.

Skoglund, sem er 29 ára, var keyptur til Vals frá sænska félaginu Utsikten í sumarglugganum 2024.
Í 48 deildarleikjum hefur hann skorað sex mörk fyrir Val. Hann skoraði tvö mörk í 18 deildarleikum á nýliðnu tímabili.

Í tilkynningu Vals segir að félagið líti á Skoglund sem lykilmann í „þeim aggressíva fótbolta" sem liðið ætlar að spila.

„Albin er toppdrengur með frábært hugarfar og leggur sig alltaf 100 prósent fram. Við erum afskaplega ánægð með að fá að hafa hann áfram hjá okkur og horfum á hann sem lykilmann í þeim aggressíva fótbolta sem við ætlum að spila," segir í tilkynningu Vals.
Albin Skoglund áfram hjá Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.