Fotbolti.net
26.10.26 - 11:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Halldór Orri og Gaui Bald í stór hlutverk hjá Stjörnunni

Halldór Orri Björnsson.

Halldór Orri Björnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan greindi á samfélagsmiðlum í dag frá því að félagið muni á næstu dögum tilkynna yfirmann fótboltamála hjá félaginu en það er nýtt stöðugildi hjá félaginu.

Víkingurinn Viktor Bjarki Arnarsson hefur verið sterklega orðaður við hlutverkið en hann kvaddi Víking á laugardag.
Í sömu tilkynningu kom fram að Halldór Orri Björnsson, fyrrum leikmaður félagsins, væri nýr formaður fótboltadeildar og tekur við af Sæmundi Friðjónssyni sem hefur starfað fyrir félagið í 16 ár. Á þeim tíma varð Stjarnan Íslandsmeistari og bikarmeistari.

Stjarnan tók þá ákvörðun að leggja niður öll ráð á síðasta ári en þau hafa verið endurvakin. Guðjón Baldvinsson er formaður meistaraflokksráðs karla Hólmsteinn Gauti Sigurðsson er formaður meistaraflokksráðs kvenna og Gunnar Freyr Gunnarsson er formaður barna- og unglingaráðs.

Stjarnan ætlar þá að vera með lið undir merkjum KFG kvennamegin á næsta tímabili.

Tilkynning Stjörnunnar
Í september urðu breytingar á stjórn knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Sæmundur Friðjónsson lét þá af formennsku og Halldór Orri Björnsson, sem þegar sat í stjórn, tók við. Jafnframt kom Pétur Rúnar Heimisson inn í stjórnina.

Stjórnina skipa:
Halldór Orri Björnsson, formaður
Áslaug Auður Guðmundsdóttir
Einar Páll Tamimi
Pétur Rúnar Heimisson
Valgeir Sigurðsson

Fyrir lokaleik tímabilsins hjá meistaraflokki karla í fyrradag var Sæmundur heiðraður fyrir 16 ára starf í þágu knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Við þökkum honum innilega fyrir ómetanlegt framlag og þann tíma og kraft sem hann hefur lagt í félagið á þessum árum.
Á síðustu vikum hefur stjórnin endurvakið barna- og unglingaráð og meistaraflokksráð karla og kvenna, ráðið Rúnar Pál Sigmundsson sem þjálfara meistaraflokks karla og gengið frá ráðningu yfirmanns knattspyrnumála. Þá er undirbúningur að kvennaliði KFG hafinn. Samhliða hefur verið unnið að skýrari verkaskiptingu og sterkari umgjörð starfsins frá yngstu flokkum til meistaraflokka.

Formenn ráðanna eru:
Barna- og unglingaráð: Gunnar Freyr Gunnarsson
Meistaraflokksráð karla: Guðjón Baldvinsson
Meistaraflokksráð kvenna: Hólmsteinn Gauti Sigurðsson

Ráðunum er ætlað að styðja við starfið og tengsl við iðkendur, foreldra og stuðningsfólk.

Yfirmaður knattspyrnumála mun leiða faglegt knattspyrnustarf deildarinnar og verður ráðning hans kynnt á næstu dögum.
Með kvennaliði KFG vill félagið gefa yngri leikmönnum fleiri tækifæri til að spila og öðlast reynslu af meistaraflokksfótbolta.

Metnaður stjórnar knattspyrnudeildar Stjörnunnar er að bæði meistaraflokkar félagsins og barna- og unglingastarfið verði í allra fremstu röð á landinu. Við viljum byggja upp sterk meistaraflokkslið og öflugt yngri flokka starf þar sem iðkendum líður vel, þeir njóta þess að spila fótbolta og finna að þeir tilheyri félaginu. Með faglegri þjálfun og góðu samstarfi við foreldra viljum við skapa öllum umgjörð og tækifæri til að læra og taka framförum á eigin forsendum
Guðjón Baldvinsson.

Guðjón Baldvinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.