Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 26. nóvember 2018 07:30
Arnar Helgi Magnússon
Myndband: Hutton hljóp sextíu metra og skoraði
Mynd: Getty Images
Hinn 34 ára gamli Alan Hutton skoraði frábært mark fyrir Aston Villa í gær þegar liðið vann 4-2 sigur á Birmingham.

Hutton, sem leikið hefur meðal annars með Tottenham, Bolton, Rangers og Sunderland hefur verið lykilmaður í liði Aston Villa á leiktíðinni. Hann hefur leikið átján leiki fyrir Villa á tímabilinu og skorað tvö mörk.

Mark hans í gær var ekki af verri endanum en hann hljóp í um það bil sextíu metra með boltann upp völlin og skoraði framhjá markverði Birmingham.

Þó að Hutton hafi gert frábærlega verður að minnast á og setja spurningarmerki við varnarleik Birmingham í markinu.

Aston Villa fórr upp í áttunda sæti Championship-deildarinnar með þessum sigri. Birmingham er í 12. sæti.

Hér að neðan má sjá myndband af marki Hutton í venjulegri útgáfu sem og Titanic tónlistin hljómar undir í því síðara.






Athugasemdir
banner
banner