Hinn 38 ára gamli Phil Jagielka stjórnaði vörn Sheffield United eins og herforingi í sigrinum óvænta á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Hann lenti í alls konar vandræðum gegn Man Utd fyrr á tímablinu en steig upp í kvöld.
Hann lenti í alls konar vandræðum gegn Man Utd fyrr á tímablinu en steig upp í kvöld.
„Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir hópinn. Við höfum verið að ná góðum úrslitum í bikarnum og það jók sjálfstraustið í hópnum. Við vissum að þetta yrði erfitt í dag," sagði Jagielka eftir leikinn.
„Það var gaman að spila í kvöld. Ég var örlítið ryðgaður en við spiluðum líka góðan fótbolta."
„Ég sagði pabba mínum að ég væri að fara að spila í kvöld og hann hló. Hann sagði mér að njóta þess því ég væri kannski að fara að spila á Old Trafford í síðasta sinn."
„Ég þarf að fara í ísbað núna en mér er alveg sama."
Athugasemdir