Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 27. janúar 2022 19:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alexander-Arnold á skilið að fá blómvönd
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold hægri bakvörður Liverpool á skilið að fá blómvönd að mati Ian Wright fyrrum framherja Arsenal.

Wright kom með ótrúlega staðreynd um leikmanninn en hann er í sérflokki þegar kemur að því að búa til opin færi fyrir samherja sína.

Fimmtíu leikmenn senda fjórar sendingar í gegn að meðaltali í leik, 21 leikmaður er með fimm sendingar, tveir með sjö. Svo kemur Alexander-Arnold einn með ellefu sendingar.

„Hann er Elon Musk, hann er Jeff Bezos, hann hefur farið upp í geim, hann er á allt öðrum stað en aðrir. Hann verður að fá blómvönd," sagði Wright.

Roy Keane fyrrum leikmaður Man Utd og nú sérfræðingur á Sky Sports hrósaði Alexander-Arnold einnig.

„Þvílíkur leikmaður. Tölfræðin er frábær. Færin sem hann skapar og stoðsendingarnar eru ótrúlegar. Hann er frábær íþróttamaður. Við erum spennt fyrir framherjum en að vera spenntur fyrir bakverði sýnir hversu mikið leikurinn hefur breyst síðustu ár. Bakverðir eru svo mikilvægir," sagði Keane.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner