Fotbolti.net
27.01.25 - 16:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Útskýrir af hverju hann sat með stuðningsmönnum Man City

Danny Drinkwater.

Danny Drinkwater.

Canon

Mynd: Getty Images

Danny Drinkwater hefur útskýrt það af hverju hann sat með stuðningsmönnum Manchester City á leiknum gegn Chelsea síðastliðinn laugardag.

Drinkwater er fyrrum leikmaður Chelsea en það er óhætt að segja að hann fái ekki nein verðlaun fyrir flottan tíma hjá félaginu.
Drinkwater birti mynd af sér á leik City gegn Chelsea síðasta laugardag en hann sat ekki á meðal stuðningsmanna Chelsea á leiknum.

Hann útskýrði það svo síðar meir og sagðist einfaldlega ekki hafa fengið miða frá Chelsea. „Ég bað félagið um miða en fékk enga," sagði Drinkwater.

Drinkwater lagði skóna á hilluna 2023 en hann er aðeins 34 ára gamall. Eins og áður segir þá var tími hans hjá Chelsea ekki merkilegur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.