Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. febrúar 2020 15:03
Elvar Geir Magnússon
Fyrsti landsliðsþjálfari Íslands í eFótbolta er frá Litháen
Fyrirliðinn Aron Ívarsson.
Fyrirliðinn Aron Ívarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Frá fréttamannafundi KSÍ.
Frá fréttamannafundi KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Keppt í Pro Evolution Soccer.
Keppt í Pro Evolution Soccer.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Fyrsta landsliðið í eFótbolta var opinberað í höfuðstöðvum KSÍ. Um er að ræða landslið sem mun keppa í fótboltatölvuleiknum PES (ro Evolution Soccer) fyrir Íslands hönd.

Liðið samanstendur af þeim Aroni Ívarssyni fyrirliða (KR), Jóhanni Ólafi Jóhannssyni (FH), og Aroni Þormari Lárussyni (Fylki).

Landsliðsþjálfari Íslands er Lithái sem heitir Evaldas Palikevicius en hann er hátt skrifaður í PES og er búsettur hér á landi. Starf hans er ekki launað.

Ísland er í riðli með Rússlandi, Póllandi, Austurríki og Ísrael í undankeppni eEURO 2020 og fer riðillinn fram í mars. Keppt er í gegnum netið en Ísland reynir að komast í lokakeppnina sem haldin verður í London.

Öll knattspyrnusambönd innan UEFA hafa staðfest þátttöku á Evrópumótinu.

Ísland tekur þátt í HM í FIFA
KSÍ hefur skráð Ísland til keppni á HM í FIFA tölvuleiknum sem fram fer í Kaupmannahöfn 22.-24. maí.

Haldið verður Íslandsmót í FIFA en fyrsta mótið verður haldið í Smárabíó helgina 14. og 15. mars en það er 16 ára aldurstakmark. Leikið er tveir gegn tveimur og félög innan KSÍ geta skráð keppendur. Á mótum innan Íslandsmótsins verður leitað að landsliðsmönnum sem fara svo til Kaupmannahafnar.

Mikill vöxtur í rafíþróttum
„Við í KSÍ erum framsækin og viljum stefna hátt. Það hefur ekki farið framhjá neinum hversu mikill vöxtur hefur verið í rafíþróttum og við erum spennt fyrir því að taka þátt í þessu," segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

KSÍ mun einbeita sér að fótbolta í tölvuleikjum, FIFA og PES leikjunum, í nánu samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands.

Langþráður draumur
Hvernig er tilfinningin að vera í fyrsta landsliðshóp Íslands í eFótbolta? Fyrirliðinn Aron Ívarsson fékk þessa spurningu frá KSÍ.

„Það hefur verið langþráður draumur að klæðast íslenskri landsliðstreyju, og þegar ég fékk boð um að taka þátt í Evrópumóti í PES ætlaði ég varla að trúa því. Ég á aldrei eftir að gleyma stoltinu og kvíðanum sem fylgdi þegar ég tók fyrstu skrefin í skrifstofu KSÍ, og beðinn um að setja á mig treyju fyrir myndartöku. Ég hef spilað Pro Evolution Soccer (PES) í meira en 20 ár, þá hét hann International Soccer Pro Evolution, en að taka þátt í Evrópumóti fyrir hönd Ísland er eitthvað sem ég hafði aldrei hugsað mér. En hér er ég í dag, tilbúinn ásamt liðsfélögum mínum að koma eFótbolta Íslands á kortið," segir Aron.

Hvernig líst þér á liðin sem þið eruð að fara að mæta í undankeppninni?

„Við lentum í gífurlega erfiðum riðli. Pólland og Rússland eru með stórt samfélag af spilurum og eru tvær af fremstu þjóðum í þessari keppni. Austurríki eru komnir langt í rafíþróttaheiminum og tefla alltaf sterku liði sama í hvaða leik. Við vitum ekki mikið um Ísrael, en ætlum ekki að vanmeta þá þrátt fyrir það. Hins vegar teljum við það jákvætt að fá svona góða samkeppni í okkar fyrstu keppni. Við eigum möguleika að vera vanmetnir og koma á óvart þar sem ekkert efni er hægt að finna um leiksskipulag og leikaðferðir sem við beitum. Þetta verður erfitt, en gífurleg reynsla fyrir landsliðið og mikið hægt að læra í þessari frumraun okkar."

Búist þið við því að spila einhverja æfingaleiki áður en undankeppnin hefst?

„Við höfum fengið formlegt boð um æfingaleik frá Búlgaríu og erum við að reyna að finna dagsetningu sem hentar báðum aðilum í næstu viku. Búlgaría er mjög framarlega í PES heiminum, en þar er PES vinsælli en FIFA leikurinn. Við búumst við erfiðum leikjum, en við munum spila með okkar landsliðum í leiknum og Ísland er nokkuð betra en landslið Búlgaríu. Við erum í góðu sambandi við samfélagið þar, en þjálfari okkar Evaldas Palikevicius, hefur tekið þátt í deildum með spilurum frá Búlgaríu. Það má búast við leiknum næsta mánudag eða þriðjudag, einhvern tímann á milli 18:00 og 21:00. Fjölmiðlar í Búlgaríu hafa sýnt mikinn áhuga á þessum atburði og megum við búast við að hann verði sýndur í beinni í Búlgaríu. Við höfum einnig verið í sambandi við Litháen og Serbíu, en ekkert slegið niður eins og er," segir Aron.

Leikirnir í undankeppninni
9. mars
Ísland vs. Rússland kl. 16:00
Austurríki vs. Ísland kl. 18:00
Ísland vs. Pólland kl. 19:00
Ísland vs. Ísrael kl. 20:00

23. mars
Rússland vs. Ísland kl. 16:00
Ísland vs. Austurríki kl. 18:00
Pólland vs. Ísland kl. 19:00
Ísrael vs. Ísland kl. 20:00
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner