Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. febrúar 2020 23:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ighalo: Dreymt um að skora fyrir United frá unga aldri
Mynd: Getty Images
„Takk fyrir, fyrst vil ég þakka guði fyrir þetta. Þetta var vel unnið hjá liðinu frá byrjun, við lékum vel og ég er ánægður að við erum komnir áfram," sagði Odion Ighalo í viðtali við MUTV í kvöld.

Ighalo var hrósað fyrir leik sinn en hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir Manchester United þegar hann kom United í 2-0 í fyrri hálfleik. Leikurinn endaði með 5-0 sigri United.

Hver er tilfinningin að skora fyrir Manchester United?

„Þetta er það sem ég hef þráð síðustu leiki að ná að skora fyrir félagið. Þetta er draumur að rætast fyrir mig. Draumur sem ég hef dreymt frá því ég var lítill strákur."

„Ég mun njóta þessarar stundar það sem eftir lifir,"
sagði Ighalo að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner