Liverpool samdi í vetur við Nike um að taka við sem búningaframleiðandi félagsins af New Balance. Nike á að taka við sem nýr búningaframleiðandi félagsins 1. júní næstkomandi.
Ef að tímabilið í ensku úrvalsdeildinni fer aftur af stað og verður spilað fram á sumar þá hefur Nike samþykkt að Liverpool klári tímabilið í búningum New Balance.
Nike fannst í ljósi ástandsins ekki rétt að gera kröfu á að koma með nýja búninga áður en núverandi tímabil klárast.

Liverpool verður því í búningum frá New Balance ef liðið fær bikarinn fyrir sigur í ensku úrvalsdeildinni í sumar.
Nike mun síðan taka við og koma með nýja búninga fyrir undirbúningstímabilið á næsta tímabili en The Athletic segir frá þessu í dag.
Athugasemdir