Hilmar Árni: Áttum að gera betur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Keflavík mættust í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld í mögnuðum leik.
Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni 2-0 yfir í leiknum en Keflvíkingar jöfnuðu metinn á lokamínútunum.
Hilmar var svekktur í leikslok.
„Við bara misstum eiginlega fókus. Tókum slæmar ákvarðanir uppá vellinum. Eins og í seinna markinu þá tapa ég boltanum og þeir fara í counter og náttúrulega frábært mark hjá þeim.\"
„Við hefðum átt að spila skynsamlega og klára þennan leik en við náðum því ekki í dag.\"
Keflvíkingar eru nýliðar í Pepsi-deildinni í ár. Hilmar segir að Stjörnumenn hafi verið búnir að fara vel yfir Keflavíkurliðið.
„Þeir voru mjög fínir í dag, mjög þéttir fyrir og mikill kraftur í þeim eins og við bjuggumst við en við áttum að gera betur.\"
„Það var marg mjög jákvætt hjá okkur bæði í fyrri og seinni hálfleik en það var ekki nóg í dag.\"
Viðtalið við Hilmar Árna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.