Fotbolti.net
17.07.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

„Ekki fræðilegur möguleiki að halda Tuchel eftir þetta“

Thomas Tuchel

Thomas Tuchel

Canon

Mynd: EPA

Fyrrum landsliðsmaðurinn Nicky Butt segir það óumflýjanlegt að reka Thomas Tuchel úr stöðu landsliðsþjálfara eftir 2-1 tapið gegn Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins.
Argentínumenn furðu lostnir yfir ákvörðunum Tuchel
TENGT EFNI

Argentínumenn furðu lostnir yfir ákvörðunum Tuchel

Nicky Butt, sem spilaði lengi vel með Manchester United og 39 leiki með landsliðinu, hefur sterkar skoðanir á þjálfaramálum landsliðsins og var allt annað en sáttur við það sem hann sá gegn Argentínu.

Thomas Tuchel hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að pakka í vörn eftir að England komst í 1-0 í undanúrslitum heimsmeistaramótsins.

Sú nálgun kom í bakið á Englendingum, sem fengu á sig tvö mörk undir lok leiksins og misstu af sæti í úrslitunum.

Butt ræddi framtíð Tuchel við Paddy Power og segir útilokað að Þjóðverjinn haldi áfram með liðið.

„Það er ekki séns að hann geti haldið áfram. Það er ekki fræðilegur möguleiki eftir þetta. Verði hann áfram þarf að reka John McDermott (tæknilegur stjórnandi enska fótboltasambandsins) í leiðinni.“

„Það er einfaldlega ekki hægt að halda honum. Hann er ekki Sir Bobby Robson eða Kevin Keegan, menn sem þjóðin dýrkar og dáir.“

„Við erum að tala um þjálfara sem kemur inn og spilar neikvæðan fótbolta í undanúrslitum gegn argentínsku liði sem var vel hægt að vinna.“

„Það skiptir þó engu máli. Fólk mun einnig snúast gegn honum vegna þess að hann er Þjóðverji og þetta verður algjör martröð fyrir hann. Tuchel er frábær félagsliðsþjálfari, þannig að leyfið honum bara að fara. Hann vill ekki vera áfram þótt hann segi annað. Innst inni er hann líklega að hugsa: 'Borgið mér og ég er farinn',“ sagði Butt.

Butt væri til í að sjá Pep Guardiola taka við liðinu en telur það ekki raunhæfan möguleika þar sem Spánverjinn lét nýverið af störfum hjá Manchester City og sagðist þurfa hvíld frá fótboltanum.

Eddie Howe, stjóri Newcastle United, er ofarlega á óskalista Butt. Hann væri heldur ekki mótfallinn því að Mauricio Pochettino tæki við eftir frábæran árangur hans með bandaríska landsliðið á HM.

„Værum við komin níu mánuði fram í tímann myndi ég sækjast eftir Pep Guardiola. Hann getur hins vegar ekki hætt hjá Manchester City, sagt að hann þurfi hvíld og farið síðan beint í annað starf. Það gengur ekki.“

Eddie Howe væri frábær kostur. Ég myndi elska að sjá hann taka við liðinu.“

„Mauricio Pochettino á í mjög góðu sambandi við McDermott. Þegar McDermott stýrði akademíunni hjá Tottenham var Pochettino þjálfari aðalliðsins og þeir unnu frábærlega saman. Það kæmi mér ekki á óvart ef Pochettino tæki við og ég væri alls ekki á móti því. Hann er frábær þjálfari og viðkunnanlegur náungi sem lætur lið sín spila flottan fótbolta.“

„Við sögðum þó það sama um Tuchel. Þegar þjálfarar koma inn í þetta umhverfi hjá enska landsliðinu virðast þeir breytast. Það er algjör klikkun og ég skil ekki hvað veldur,“ sagði Butt.
Nicky Butt vill að Tuchel verði rekinn

Nicky Butt vill að Tuchel verði rekinn

Canon

Mynd: EPA

„Ekki fræðilegur möguleiki að halda Tuchel eftir þetta“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.