Gunnar Magnús: Hleypir illu blóði í Suðurnesjamenn

Gunnar Magnús Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Magnús Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur í Bestu-deild kvenna var að vonum ánægður með sitt lið eftir 0-4 sigur á KR í fyrstu umferð Bestu-deildar kvenna.
„Mér fannst stelpurnar bara geggjaðar í dag, stóðu sig virkilega vel, skipulagið hélt vel og við gerðum fjögur mörk. Margir búnir að tala um það að við ættum í erfiðleikum með að skora en það var ekki í dag og við hefðum meira að segja geta gert mun fleiri."
Gunnar Magnús gefur lítið fyrir þær spár sem birtar hafa verið fyrir mót. En Keflvíkingum er ekki spáð góðu gengi í sumarið.
„ Já, já, þetta er náttúrulega fyrsti leikur en frábært að byrja svona og þessar spár eru náttúrulega svona bland í poka og maður veit ekkert hvernig það kemur upp í lokinn. Svona spár hleypir illu blóði í Suðurnesjamenn og gerir okkur bara gott og ekkert annað.
Gunnar Magnús sagði KR-ingana hafa verið sterkari til að byrja með en þegar leið á leikinn hafi sitt lið náð tökum á leiknum og frammistaðan verið góð.
„ Þetta byrjaði svolítið svona að þær voru öflugri framan af en síðan náðum við nokkuð góðum tökum á leiknum og vorum að færa boltann oft vel og skapa okkur góð færi og komast bak við þær og mörkin öll bara virkilega góð mörk. Síðan vorum við bara þéttar í okkar varnarleik og það var virkilegur dugnaður og vilji og baráttuhugur í stelpunum og við gáfum ekki tommu eftir."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.



