Hjörvar Hafliðason sagði frá því í hlaðvarpsþætti sínum, Dr. Football á laugardag, að tíma Ögmundar Kristinssonar (1989) hjá Val væri lokið.
„Hann átti fund með Valsmönnum á dögunum þar sem honum var tilkynnt að hans krafta verði ekki óskað framar. Það á eftir að ákveða hvort þetta verði starfslokasamningur eða á launum eins og Aron Jó er akkúrat núna. Núna er glugginn opinn og Ögmundur getur fundið sér eitthvað annað. Ég vona að hann haldi áfram í fótbolta," sagði Hjörvar í þættinum.
Markvörðurinn Ögmundur gekk í raðir Vals sumarið 2024 eftir um áratug erlendis og 19 A-landsleiki. Meiðsli hafa setti mikinn svip á tíma hans á Hlíðarenda. Ögmundur var meiddur vorið 2025 og þá ákváðu Valsarar að ná í Frederik Schram aftur frá Danmörku. Ögmundur spilaði í leikjum á undirbúningstímabilinu og var á bekknum í fyrstu tveimur deildarleikjunum. Hann var hins vegar utan hóps gegn FH í þriðju umferð og líkur á spiltíma ekki miklar eins og staðan er í dag. Frederik Schram er aðalmarkvörður liðsins og Stefán Þór Ágústsson var á bekknum gegn FH.
Fótbolti.net ræddi við Björn Steinar Jónsson sem er formaður fótboltadeildar Vals.

„Hann er samningsbundinn okkur en hefur ekki verið að spila mikið, ég geri ráð fyrir að þetta (orð Hjörvars) séu bara getgátur tengdar því. Ég hef í raun ekkert meira um það að segja. Hann var ekki í hóp í síðasta leik, var á bekknum í leikjunum þar á undan og spilaði einhverja leiki á undirbúningstímabilinu," segir Björn Steinar.
En átti sér stað eitthvað samtal við Ögmund um möguleg starfslok?
„Ég hef ekkert meira að segja en að hann er samningsbundinn okkur."
Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokar á miðvikudagskvöld en opið er fyrir skipti úr Bestu deildinni í Lengjudeildina og 2. deild í viku til viðbótar.