Spyrnir 0 - 4 Einherji
0-1 Helgi Már Jónsson ('7)
0-2 Ruben Menendez Riesco ('10)
0-3 Ruben Menendez Riesco ('45)
0-4 Jose Cascales Sanchez ('93)
Spyrnir tók á móti Einherja í eina leik kvöldsins í 4. deildinni. Leikið var á Egilsstöðum og tóku gestirnir frá Vopnafirði forystuna snemma leiks.
Helgi Már Jónsson skoraði á sjöundu mínútu og tvöfaldaði Ruben Menendez Riesco forystuna skömmu síðar.
Ruben gerði þriðja mark Einherja skömmu fyrir leikhlé og áttu heimamenn aldrei möguleika.
Jose Cascales Sanchez skoraði síðasta markið í uppbótartíma og lokatölur 0-4 sigur.
Liðin leika í E-riðli og er Einherji með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Spyrnir er í öðru sæti með sex stig.
4. deild karla - E-riðill
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|
Athugasemdir