Said El Mala, leikmaður Köln í Þýskalandi, er einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum fyrir sumarið.
Þessi 19 ára gamli Þjóðverji hefur vakið mikla athygli í þýska boltanum og vonast hann til að taka næsta skref á ferli sínum í sumar.
Hjá Köln er hann liðsfélagi landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.

Hann hefur einnig verið sterklega orðaður við Brighton en núna virðist Brentford mögulega vera líklegri áfangstaður fyrir kappann.
Thomas Kessler, yfirmaður fótboltamála hjá Köln, segir að tilboð hafi borist í El Mala og samkvæmt Bild hljóðar það tilboð frá Brentford upp á 45 milljónir evra.
Talið er að Köln vilji fá 50 milljónir evra en tilboði Brentford fylgir ákvæði um að Köln fái 15% af næstu sölu.