Fílabeinsstrendingurinn Evann Guessand skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld er hann vann Sambandsdeildina með Crystal Palace, en hann er fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að vinna tvær Evrópukeppnir á sama tímabili.
Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði fyrri hluta tímabilsins með Aston Villa.
Hann spilaði 7 leiki og skoraði 2 mörk í deildarkeppni Evrópudeildarinnar, en var síðan lánaður til Palace í janúarglugganum.
Guessand lék 6 leiki og skoraði 1 mark með Palace í Sambandsdeildinni og lyfti síðan bikarnum í kvöld.
Aston Villa vann Evrópudeildina á dögunum og fékk Guessand medalíu fyrir árangur félagsins í keppninni sem gerir hann að fyrsta leikmanninum til að vinna tvær Evrópukeppnir á sömu leiktíðinni.
Palace getur gert skiptin á Guessand varanleg í sumar fyrir 28 milljónir punda, en ekki er ljóst hvort félagið muni nýta sér ákvæðið.
????FACT: Evann Guessand is the first player to win two European trophies in a single season
— Polymarket Sports (@PolymarketSport) May 27, 2026
He joined Crystal Palace from Aston Villa in January, and will receive a Europa League medal on top of his Conference League win pic.twitter.com/NSCRpV2KNL



