Gunnar Heiðar var að vonum sáttur eftir að hafa náð 1-0 sigri gegn Völsungi í kvöld
Lestu um leikinn: HK 1 - 0 Völsungur
„Þetta er mjög mikill léttir. Ég er mjög ánægður að strákarnir héldu áfram að banka á dyrnar og það kemur að því að annað hvort opnast dyrnar eða þær brotna til að fá þetta mark.''
Atli Hrafn Andrason, leikmaður HK, fór útaf á 15. mínútu. Hvers vegna var það?
„Þetta er einhvers konar krampi en við eigum eftir að sjá hvernig ástandið er á Atla og liðinu.''
„Þessi maímánuður er búinn að reynast okkur erfiður, við erum búnir að spila sjö leiki og þessi leikur er fyrstur af þremur á níu dögum sem reynir á hópinn.''
HK-menn fengu þrjú þvílík dauðafæri, en það var bjargað skoti frá þeim á línu, þeir áttu síðan tvö skot í tréverkið. Gunnar var spurður svo hversu mikill léttir var að þeir skoruðu svo á 83. mínútu.
Ótrúlegur léttir, maður byrjaði að hugsa „Andskotinn, verður þetta svona dagur?'' þegar boltinn fór svona oft í tréverkið. Ég get alveg sagt þér það að ég er búinn að sjá þrjár fæðingar á ævinni og þetta var örugglega erfiðasta fæðing sem ég hef séð.''
HK á síðan leik gegn Leikni á útivelli næstkomandi sunnudag.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.





















